Vélbúnaðarkröfur
Að setja upp Mandriva Linux er oftast eins einfalt og að setja uppsetningardiskinn í geisladrifið, og endurræsa tölvuna. Vinsamlega sjá nánar liður 1.
ATHUGIÐ:
Hér að neðan er listi yfir mismunandi aðferðir við að setja upp Mandriva Linux:
Uppsetningargeisladiskurinn er ræsanlegur. Í flestum tilfellum er nægilegt að setja diskinn í diskdrifið og ræsa tölvuna. Fylgið síðan leiðbeiningum á skjánum: sláið á [Enter]-hnappinn til að hefja uppsetningu, eða sláið á [F1] til að fá ítarlegri upplýsingar.
ATHUGIÐ:
Á sumum fartölvum er ekki hægt að ræsa upp frá geisladiski. Í þeim tilfellum verður þú að búa til ræsidiskling. sjá nánar í liður 2.
Ef tölvan þín getur ekki ræst upp frá geisladiski þá verður þú að búa til ræsidiskling undir Windows á eftirfarandi hátt:
Til að byrja uppsetninguna:
Ef fyrrnefndar aðferðir duga ekki eða þú vilt setja upp á annan hátt (ef þú t.d. vilt setja upp yfir net eða setja upp frá pcmcia-tæki eða ...), þarft þú líka að búa til ræsidiskling :
Hér er listinn af ræsiímyndum:
cdrom.img | Uppsetning frá CD-ROM |
hd_grub.img | uppsetning frá diski (frá Linux-, Windows-, eða
ReiserFS-skráarkerfi) þú getur stillt það fyrir þitt kerfi á: http://qa.mandriva.com/hd_grub.cgi |
network.img | uppsetning frá ftp/nfs/http ATHUGIÐ: þú verður að setja inn network_drivers.img í disklingadrifið þegar beðið er um |
pcmcia.img | uppsetning frá pcmcia-tæki (aðvörun: flest pcmcia-netkort eru nú studd beint frá network.img) |
Þú getur einnig brennt boot.iso á geisladisk og notað hann til að ræsa. Hann styður allar uppsetningaraðferðir: geisladisk, net, og harðan disk.
Þú getur einnig notað texta-ham ef þú af einhverri ástæðu ert í vandræðum með grafíska uppsetningu. Til að nota hann ýttu á [F1] á upphafsskjánum, sláðu síðan inn text.
Ef þú þarft að bjarga uppsettu Mandriva Linux kerfi, settu þá inn uppsetningar-geisladiskinn (eða samsvarandi ræsidiskling), ýttu á [F1] á Mandriva Linux uppsetningarskjánum og sláðu síðan inn rescue.
Sjá http://www.mandrivalinux.com/drakx/README ef þú þarft nánari tækniupplýsingar.
Áríðandi athugasemd:
"root"-notandinn gefur þér ótakmarkaðan aðgang að linux kerfinu þínu. Notaðu hann ekki til annars en að stilla eða stýra Linux. Notaðu venjulegan notanda-aðgang til allmennra aðgerða, notendur getur þú sett upp með "userdrake" tólinu, eða með skipunum "adduser" og "passwd".
Til að leita eftir aðstoð, athugaðu etirfarandi: